A proud member of the billionaire girls club
22.04.2008 15:41:55 / ladyathens

það er í raun ekki tilgangur ..

..fyrir mig að blogga e-ð lengur.

Allir vita hvorteðer eiginlega alltaf allt sem ég er að gera.
Mér til mikillar mæðu.

adieu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 11:52:25 / ladyathens

sex is not the enemy



Allir fóru til Akureyrar um helgina, eða flestir. Ég hinsvegar var að vinna á Hverfis á föstudaginn, það var ekkert e-ð brjálað bilað að gera þannig að barnum uppi var lokað um hálf 3 og var ég þvi búin að vinna & fór þá aðeins á djammið með honum Ása mínum. Laugardagurinn var semi svipaður, vann reyndar til að verða hálf 7 þvi við vorum alls ekki snögg að þrífa & skuntist svo heim í snjónum. Sunnudaginn fór ég að vinna á Dominos frá 6 til rúmlega 12 & mjáá.

Mánudaginn var ég með gubbupest, mmmnais. Í gær eftir skóla fór ég upp í Snyrtiskólann þvi að Ragga ætlaði að mála mig fyrir myndadaga sem voru þarna ,, myndirnar komu mjög skemmtilega út & það er bara gaman. Hitti Ernu Guðrúnu :]]

Ég rakst á svo ótrúlega fyndna frétt á forsíðu frettablaðsins í dag. "Strætósvindlarar á öllum aldri" ..og þar var sagt frá eldri konum með fölsuð strætókort, það var mjög hressandi að lesa svona í morgunsárið :]] ..Mjööög skemmtileg helgi framundan, eg ætla að taka einhverjar myndir i think, eða, við sjáum bara til lovers.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 01:30:40 / ladyathens

mjá hvæs mjá


aww, bara ég & kæró í sunnudagskúrinu.

Mikið er búið að vera að ske hja mer, fór til DK yfir páskana með Ævari löver, myndir frá því má sjá á www.myspace.com/aevare svo er ég bara búin að vera að gera hluti sem ég man ekki núna ,,hmmm.

Seinasta fimmtudag var ég módelið hans Ísaks fyrir Hamskipti sem voru haldin í Smáralind, og ætli ástin mín hafi ekki bara sigrað 1 sæti yfir alla [alla í hári og alla í förðun] && var hamskiptameistari [miðað við heildarútlit]. Síðar um kvöldið fórum ég og Stefania á opnunina á Oliver þvi ég og Ísak fengum boðsmiða, og það var fínt, sá samt enga breytingu á staðnum f.u. reykingarsvæðið ..whatever.

Á föstudaginn fór ég að selja boli fyrir Ása og co. á Get-Rvk hátíðinni, CashMoneyFame [CMF] og var það mega nais, rosa gaman að fá að eyða tíma með Ása mínum. Byrjuðum að sötra full snemma, og hentumst upp í stúdíóið hans Óla og vorum svona 10 þar eða e-ð. Fórum á Barinn, svo á KB og þar hitti ég Lilju og við hentumst saman í hringi þar sem eftir var kvölds.

Á lau ætlaði fékk ég mér þynnkumat með Steinda [Jr] && Dóra [DNA] á Kfc og keyrði svo þunn heim. Vann smá, og fór svo til Kef því að Böddi og fél í Dalton voru að spila ásamt mr sugar himself, Joey D & Óla Geir og var ég á gestalista og þvi var upplagt fyrir mig, Helenu og Karitas að halda smá oldschool sunddjamm. Það var rosalega gaman, þar til um 6 þegar ég .sofnaði. og vaknaði aftur um 9 leytið rosa þunn. && hitti alvöru múslima sem heitir Muhammad Amin, og e-ð já. Smá vesen að komast heim því að taskan mín var læst inn á trix og bíllinn f.utan hjá Sigga hennar Helenu og ég í rvík o_O En ég talaði við Jósep sem hleypti mér inn og fékk bil hjá Bödda og e-ð, ekkert veeesen :)

Svo bara núna, er ég buin að vera að vinna og vinna. Síðan á morgun er kaffihúsakvöld Forvarnarhópsins sem verður rosalega edrú og skemmtilegt :]] .. svo langar mig til ak en það er of seint þvi ekki á ég gistingu eða miða á skemmtunina, bömmer. Well, ég verð bara að vinna á Hverfis i staðinn :]] ..aallavega, reyni að lata ekki líða svona langt á milli næstu færslu mmmk?

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 23:31:18 / ladyathens

mér finnst ótrúlega gaman að ..

.. því að sumir hafa kallað mig Athenu af myspace er ég rekst á þá á djamminu. -keep it up

.. því að ég keypti mér 1000kr inneign hjá Nova fyrir tæplega viku. & þegar ég kíkti á innistæðuna mína í dag sá ég að ég á 2500kr í inneign. Þannig sá sem er að gefa mér inneign, skál! ég er sátt með þig.

loves it.

x
Athena.

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 12:01:59 / ladyathens

píur og herrar.


Hola chicas!

Ég er bara svo óhugnalega busy manneskja að ég hef ekki tíma til að blogga hérna endalaust, og þar sem það er engin erftirspurn eftir því þá læt ég það bara liggja á milli mála.

Á fimmtudaginn fór ég á árshátíð, Auddi og Sveppi, þá aðallega Auddi gerðu endalaust grín að mér, fröken pocahontas og hennar afrek. Fór síðan í bæinn með S, kíktum á Tropical, þar var Ása Guðrún og Aníta, varð allt í einu rosalega ölvuð, mér sem fannst ég vera svo rosa róleg e-ð. Mmm sá líka Hildi Karen sem ég hafði ekki séð lengi, mjájá. E-r gaur ákvað að pikka mig upp, bókstaflega og var mér dáldið illt í rifbeinunum e-ð eftir það.

Á föstudaginn var ég þunn. Fór svo að vinna á domo og síðar um kvöldið fór ég að vinna á Hverfis. mikið gaman, mikið gaman já.

Á lau fór ég aftur að vinna á domo. Síðan aftur á Hverfis. Það var svo vont veður að ég þorði ekki að keyra heim þannig ég kíkti á Grand en þar var allt uppbókað, fór síðan á Hilton hótelið og þar var einnig allt bókað, og þar sem ég nennti ekki að vera á einhverju shabby hóteli lagði ég líf mitt í hættu og keyrði heim. ehh.

Á sunnudaginn fór ég í bæinn til að sansa lokaverkefnið hans Ísaks hjá emm. Outfitið var killer [mynd af því má sjá inná mæspeisinu mínu --> www.myspace.com/sovintage] .. Dominatrix, playboy-esque, killer queen look. Var ótrúlega gaman og blabla þið vitið. Fór ykt snemma að sofa. mmm nais. margt að gerast nuna, fimmtudagurinn þarna sem trónir á atburðatoppnum. síðan dk með Ævari ástinni minni <33 .. mmm næs.

ciao!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 22:14:40 / ladyathens

glæsilegt.




Talvan mín hefur enn einu sinni yfirgefið mig. Hún neitar að kveikja á sér og neitar að gera hluti fyrir mig. Helvitans tölvu djöfulsins drasl. En þar sem það eru 4 tölvur í þessu húsi og einungis 3 manneskjur sem búa hérna, þá nappaði ég einni tölvu og sit hér með ókunnugt lyklaborð & skrítið system.


Helgin var æðisleg verð ég að viðurkenna. Hef sjaldan skemmt mér jafn vel, var útum allt, lennti í ótrúlegustu hlutum en það er bara partur af þessu. Kampavínssötr hjá Trudy, Afmæli hjá Írisi, 101 rvík með hans mörgu skemmtistöðum. Kraftwerk Orange á Organ með Lilju Hrönn og vinkonum hennar, smá dans með Ævari á Qbar, 101 og hans fjölbreytileiki, weird eftirpartý, hlátur, dans og dauði yfir oth heima hjá Ása um 8 leytið á sun. Mér tókst einnig að klemma á mér puttann sem varð til þess að hann brotnaði, eða það flosnaðist bein hjá liðamótunum og er þar myndarlegur marblettur [já Steff ég get fengið marbletti] þar sem beinið skarst í húðina. Þar sem ég fann ekki alveg hvað þetta var vont, þegar þetta skeði, þá ákvað ég bara að chilla á þessu sem var víst ekki góð hugmynd að sögn læknisins sem ég fór til í dag, hann vildi meina að ég hefði átt að fara beint upp á slysó til þess að láta sauma hann útaf dýpt sársins. En þar sem ég gerði það ekki þá blæddi inn á liðamótin á fingrinum og er hann nú brennheitur og risastór og rauðleitur. Einnig er ég komin með sýkingu sem lýsir sér í eymslum í allri hendinni og rauðar rákir geta birst á handlegginn, þá er ég víst í hættu. Ég neitaði hinsvegar að láta spekla fingurinn, ég er að fara á árshátíð á fimmtudaginn og god forbid að ég verði með einhverjar svaka umbúðir ,, damn straight.

Fór í þvilikt skemmtilega myndatöku á sunnudaginn. x-men / fantastic 4 þema. ýktar og sterkar pósur, i love it. David Terrazas var að mynda, þetta var rosa gaman. - Opnir dagar að hefjast. Mikið gaman. Bjórkvöld á miðvikudaginn. Árshátíð á fimmtudaginn. Mmm nais.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 00:33:11 / ladyathens

Hey shorty, it's my birthday! I'm gonna party cause it's my birthday !


ÉG Á AFMÆLI Í DAG !! ;D

Þar sem ég er orðin sjálfráða má ég frá og með deginum í dag ;;

:: Kaupa sígarettur
:: Flytja að heiman.
:: Fá mér kreditkort.
:: Ganga í bandarískaherinn!
:: Gifta mig.
:: Fara í lýtaaðgerð án samþykki foreldra.
:: Koma fram í xxx-blaði
:: Leika í xxx-mynd.
:: Taka mér lán
:: Hringja mig inn veika í skólann.
:: Keyra í Evrópulöndum.
:: Fara inn á Breiðina & Mörkina [SCORE!]
:: .. && svo miklu miklu fleira.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 22:30:57 / ladyathens

the collector

Það kemur ekki oft fyrir að ég mæli með einhverri bók, en ég mæli hinsvegar eindregið með bókinni The Collector eftir John Fowles sem kom út 1963. Hún er um sækó gaur sem er yfirsig ástfanginn af stúlku þannig hann ákveður að ræna henni. Hmm haa hún er óhugnaleg en góð samt sem áður. Skyldulesning fyrir Ensku503 but it is gooood.

Opnir dagar eru í næstu viku, þá eru alskonar viðburðir í gangi og ég var að klára að staðfesta mitt val. Ég var sofandi þegar skráningin hófst þannig ég náði ekki því sem ég vildi fara í. Langaði í Aerobic en það var fullt god damn. Anyways, þetta verður skrautlegt þar sem ég valdi eftirfarandi ;;

Hestaferð þriðjudagur f.h 
- Ég er hrædd við hesta.
 
Vídeónámskeið þriðjudagur e.h
 
- Ég kann ekki á DVD spilarann minn.
 
Skautaferð miðvikudagur f.h. og e.h.
- Ég kann ekkert á skauta, & maður er að fara að læra íshokkí o_O

Sjálfsmynd unglinga - ef ég bara vissi fimmtudagur f.h
- einn tveir og SOFNA!

Leikrit NFFA fimmtudagur e.h
- mig minnir að ég hafi átt að velja leikritið þar sem ég er þáttakandi í uppsetningunni. Hmm haa þetta verður samt spennó.

Síðan er árshátíðin á fimmtudaginn && svo árshátíðarfrí föstudaginn eftir það. && ég á afmæli ekki á morgun, heldur hinn! woop woop ..Mig grunar að það sé stæ próf á morgun, en ég er ekki viss samt. hmmm.

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 01:37:46 / ladyathens

If you choose the booze, you lose


Í dag eyddi ég tveimur tímum í skólanum í það að vinna anti-drug verkefni fyrir forvarnarhópinn. Gerðum plaköt og fundum mörg slogan, það er ástæðan fyrir mínum hálgerða drug-free áróðri via mæspeis og msn. Ég bjó meira að segja til litla anti-dope vísu. & hún var svohljóðandi;;

dópnotkun ber þig fram á ystu nöf
& leiðir þig í þína eigin gröf.

Já svona er maður nú hæfileikaríkur. Fór í einstaklega skemmtilegan dönskutíma, var bara í 20 mín en ég fékk alveg slúður overdose og það eina sem ég sagði var held ég; "ómægod! nei! í alvöru? guuuuð þetta vissi ég ekki!!" hmm haa.

Í íþróttum ákváðum ég og Svenni að taka ofurmanninn á þetta, og eftir að ég gerði yoga æfingarnar mínar þá hlömmuðum við okkur niður og fórum að rúlla á milli risa stóran pilates bolta, sem btw gaf mér harðsperrur í þumalfingurna. enda köstuðum við, rúlluðum og skoppuðum við boltanum á milli okkar í 40 mín. dugnaður, og ekkert annað.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 07:44:53 / ladyathens

dómskerfi [er það orð?] Íslands.

Á www.domstolar.is má skoða öll mál sem hafa farið í gegnum hæstarétt íslands. Frekar interesting, mæli með að fólk skoði það sér til dægarstyttingar.

Í málinu þar sem hellings af kílóum af eiturlyfjum voru smygluð inn í landið, og var víst alveg rosa mál, fékk sá sem fékk þyngsta dóminn, 9 og hálft ár í fangelsi.

Hinsvegar, í málinu þar sem að strákur misnotar 8 ára systur sína, fékk hann 6 mánuði í fangelsi, þar af 3 skilorðisbundna.

segið með mér, what, the fuck ?! Afhverju er í lagi að eyðileggja sálir jafn hroðalega og kynferðisleg misnotkun ber í skauti sér , eða kannski ekki í lagi, en hvers vegna er fólk svona kammó yfir því [?] á meðan að t.d fólk sem að reynir að smygla inn eiturlyfjum og tekst það ekki, fær upp í 10 ára fangelsi. meðan hinir fá sjaldan yfir ár.

Ég mæli með því að dómararnir hjá Hæstarétt Íslands nýti refsirammann mun betur. Þetta er til algjörrar skammar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 15:34:34 / ladyathens

foreldrar? hrmpf.


Ég ::
Pabbi! Mamma hélt að ég ætti afmæli 21 feb ! :/
Pabbi :: núú, ég hélt að þú ættir afmæli 18 feb.
Ég :: NEI !! ég á afmæli 22 febrúar !

foreldrar?
hrmpf.

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 20:59:13 / ladyathens

glæpamaður no more.


Í febrúar í fyrra þá átti ég að fara með bílinn minn í skoðun, ég beið með það í sirka 3 mánuði og skellti honum svo í skoðun. Fékk endurskoðun og þurfti að kyra um með neon grænan miða á númeraplötunum, sem var ekki alveg basic. Fór með hann í endurskoðun og fékk, aðra endurskoðun takk fyrir takk. Þá varð ég rosalega bitur sál þannig ég ætlaði mér ekki að fara með hann aftur nærrum því strax. Mánuðirnir liðu & ég avr viss um það að lögreglan væri að fylgjast með hverju skrefi, þvi að truthfully þá hefur löggan á Akranesi takmarkað annað að gera.  Á endanum var paranojan komin í mjög hátt stig, enda kominn desember & ég átti að vera búin að fá skoðun fyrir 10 mánuðum.

Janúar leið og ég hætti alfarið að keyra bílinn minn. Já svo var einnig endalaus snjór úti og ég er ekki á vetrar bíl. - En í dag, fór ég í skoðun. Klædd hálfpartinn eins og gothic lolita, sem var alls ekki ætlunin, með stress í hjarta þó svo að hún Dísa hjá frumherja reyndi að róa mig smá. Karlinn kemur síðan til mín ekkert sérstaklega kátur á svipinn og bendi mér að koma inn. En hvað sé ég, skærgulur 09 miði kominn! :]] - Power Rangers, aka rauða drekaflugan ber sig vel með nýju miðana og er ég mjög svo kát yfir þróun mála. Glæpatíð minni hefur formlega lokið & ekki þarf ég að hafa áhyggjur á að fara í skoðun næstu 12 mánuðina. woop woop!

- mér líkar ekki við breytinguna á blogcentral. finnst þetta dáldið leim.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 21:38:25 / ladyathens

don't try to fit in, we'll just laugh you away.


Netið mitt er búið að vera að vinna svo óhugnalega hægt, blog.central er einnig búið að vera frekar skítt uppá síðkastið og talvan mín er við það að deyja. Ekki gott ekki gaman.

Ég þarf að fara að taka mig örlítið á í skólanum, er basically farin að mæta einungis þegar mér hentar. Ekki smooth. Ég á bara fjórar annir með þessari eftir, meika ekki að þurfa að vera lengur en planað var, 3 og hálft ár er alveg nóg.

Ég er búin að fá aðra afmælisgjöf [aðra en snilldar kökumixið frá Glitni] og það er frá m&p, flugmiði til danmerkur & miði á Roskilde Festival takk fyrir takk. Ég & Stefania fljúgum út 29 júní og komum heim 7 júlí. Erum einnig komnar með gratis gistingu, super fly þannig ég þarf einungis að borga, well ekkert nema gjaldeyri :]

Ég, m&p erum síðan líklegast að fara til New York 6 júní, og verðum í tvær vikur. mmmnais. Mig langar samt svo til Parísar, veit bara ekki um marga sem langar að fara og eiga actually pening - þekki i raun engann. Ætla mér einnig í heimsókn til Ævars ef hann flytur út í sumar. síðan er ein útlandaferð komin á kortið fyrir næsta ár, new york í 2 vikur með honum Sigga litla einhvern timan í Júlí :] mmm. Langar einnig í svona, evrópu lestar ferðar trip. Og í heimsreisu þegar ég verð tvítug, áður en ég fer í háskóla. mmm spennandi tímar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 23:45:47 / ladyathens

i've been a good girl & it's not a school night.


la di da di, we likes to party [Rina, Ragga & ég í fyrirpartýinu fyrir tískusýningu Frozt Design]

Í fyrsta skiptið í langan, langan, mjög mjög mjög langan tíma, var ég heima á föstudagskvöldi. Það var svo hrikalega slæmt veður, að enginn heilvita maður myndi voga sér út á kjalarnesið, það var varla fært á milli húsa. Þannig ég eyddi kvöldinu í vinalegu spjalli við ótal marga í sömu aðstæðum og ég, meikuðu beinlínis ekki út í þessu veðri og sofnaði því yfir the office, klukkan 2 um nóttina þeinkjúverínæs. Vaknaði mjög skelkuð þegar móðernið kom inn og spurði mig hvað ég vildi í morgunmat. Var skíthrædd um að ég hefði sofið yfir mig og ætti að fara í skólann, þar sem ég er ekki vön að vakna á skaganum á fríhelgunum mínum.

Fór niðrí Bíóhöll á leiklistaræfingu klukkan 1 og var þar til 3. Eftir það skuntist ég heim og gerði mig tilbúna til að fara til rvík. Ég og Stefania byrjuðum á að fara í kringluna, kíktum aðeins í Brim á Ása. Vorum síðan í búningaleit það sem eftir lifði dags. Fórum til Ása um 7 leytið og þá fékk ég mér nokkra Cosmopolitans. Rúmlega 8 skutlaði S mér á Black þar sem fyrirpartýið f. Frozt Design sýninguna var. Edda og Arna voru þar og Ævar var að fara að sýna. Ég & Edda tókum einmitt gott trúnó sem var mjög vel þegið. Sýningin byrjaði um hálf 11 og var hún mjög vel heppnuð. Eftir hana skutlaði Edda mér niðrá glaumbar þar sem grímupartý var í gangi. Það var altilaji. Fékk leið á endanum svo ég fór með Alexander og vin hans heim til einhvers vinar þeirra og við vorum þar e-ð smá, og fórum síðan á Hverfisbarinn rúmlega 1.

Á Hverfis var hellingur af fólki. Hitti Dóra sem var mjög sprækur með sína myndavél og ég ætla að giska á að einungis hryllilegar myndir hafi komið af því. Árni var líka þarna og Jón Atli. Benni og Óli komu einnig. Hitti Önnu Fríðu hennar Þrúðar og e-ð bara hellingur af fólki. Var þar til lokunar og þá skuntumst ég og Jón Atli á Prikið. blabla rosa gaman. Þar var troðið, hitti Magna sem var ótrúlega hress eins og vanalega :]] .. Um 6 leytið fór ég og fékk mér pizzu og rölti svo til Ása til að sofa. S sótti mig og við fórum á KFC í okkar þynnkumatar ritual. Stefán Atli heldur líklegast að við séum e-ð vangefnar en það er önnur saga. Fór að vinna kl 6 og núna er ég bara að myglast í rólegheitunum. Pretty sensual. Enn ein skólavikan að hefjast, oh looord.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 15:18:41 / ladyathens

tell me lies, tell me sweet little lies.


Ég hef oft íhugað um gildi lyginnar. Hvenær á maður að ljúga og hvenær á maður ekki að ljúga. Flestir ljúga amk einu sinni í viku, misstórar lygar auðvitað. T.d. "ég gleymdi verkefninu mínu heima" eða "auðvitað er ég búin að læra" varðandi skólann, eða breyta aðeins sannleikanum þegar kemur að þvi þegar maður er spurður t.d hvað manni finnst um hárið á einhverjum, eða nýja outfit-ið. Stundum er nauðsynlegt að ljúga, stundum vill maður að fólk ljúgi að sér. Enginn vill heyra að maður sé í fug skóm eða að maður sé ekki nógu góður til að gera e-ð, sérstaklega ekki frá fólki sem manni þykir vænt um. Maður á alltaf að láta vinum sínum finnast eins og þeir séu ofurmenni, sama hversu lítið maður trúir því sjálfur.
 
Hinsvegar er sannleikurinn ávallt sagna bestur, eða svo til, það er ekkert jafn særandi að vita að einhver var að ljúga að manni um e-ð stórt, traust er mikilvægt í mannlegum samskiptum þó svo að hver og einn á eftir að bregðast trausti einhvers mikilvægs í lífi sínu að minnsta kosti einu sinni, jafn vel mun oftar. Fólk lýgur til að koma sér úr vandræðum eða jafn vel til þess að fá e-ð betra starf. Svona er þetta bara, fólk lýgur og fólk særir, deal with it.
 
En að merkilegri málefnum, hvernig á ég að komast til rvík í kvöld!? Ég er dálítið hrædd við vonda veðrið :( .. og btw, ég er búin að fá eina afmælisgjöf, það var smáköku mix frá Glitni, nú get ég bakað 8 smákökur á afmælisdaginn minn sem er eftir 2 vikur. woop!

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
RSS tengill